Aftur á forsíðu  
Dalvegur 16b - Sími 5100-500 fréttir fyrirtækið tilboð þjónusta vörur
 
Fréttir
Vörur
Endurvarpar-Kort
Heimildasafn
Fróðleikur
Rafhlöður
Fjarskipti
Fyrirtækið

 







Feris vefmyndavél í Eldey
 

  
 
 
       Þann 20.janúar 2008 var farið með búnað út í Eldey til að koma upp vefmyndavél í eyjunni. Þetta er samvinnu verkefni Feris ehf og Elnet-Tækni en aðal hönnuður og smiður er Sigurður Harðarson. Búnaðurinn samanstendur af upptökuvél, loftneti, sólarsellum og rafgeymum. Auk þess er stjórnbúnaður til að setja upptöku af stað. 
     
       Smíða þurfti utan um búnaðinn með tilliti til veðurs, seltu og ágangs fugla en hugmyndin er að fylgjast með fuglalífi í eyjunni sem er stærsta Súlubyggð í heimi. Alls vegur búnaðurinn um 1 tonn sem fluttur var út í eyju með þyrlu Landhelgisgæslunar.
      
      Merki er sent í raforkuver Hitaveitu Suðurnesja sem mun sjá um dreifingu inn á Internetið, auk þess sem fyrirtækið mun sýna myndir í sýningarsal sínum. Það eru Reykjanesbær og Hitaveita Suðurnesja sem standa að þessu verkefni. Ekki er að efa að þetta framtak mun vekja athygli víða um heim.
 
 

 
22.1.2008 00:00:00
Eldey í beinni

Starfsmenn Feris ehf hönnuðu og settu upp vefmyndavél í Eldey sjá frétt á RÚV hér að neðan.     Vefmyndavél í Eldey

Lesa alla fréttina
 
21.1.2008 23:30:00
Feris setur upp vefmyndavél í Eldey

Eldeyjarsúlur í beinni útsendingu - Stórt stykki að klofna úr Eldey. Stór og djúp sprunga  er í yfirborði Eldeyjar og gæti stórt stykki brotnað úr eyjunni við t.d. snarpan jarðskjálfta. Snarpir skjálftar hafa verið á hafsbotni nærri Eldey, m.a. í gær, sunnudag.

Lesa alla fréttina
 
11.12.2007 01:23:00
Nýjar rásir

Nýjar Rásir á VHF fyrir Björgunarsveitir og ferðafélög . Allar eldri rásir björgunarsveitanna haldast óbreyttar ásamt því að bæst hafa við þrjár nýjar rásir. Nýr endurvarpi er fyrir stór Reykjavíkursvæðið, Rás 11. Annar 

Lesa alla fréttina
 
9.12.2007 18:42:00
Nýjasta kortið yfir VHF endurvarpana á landinu

Lesa alla fréttina
 
9.12.2007 18:38:00
Myndir af endurvörpum.

Á næstu dögum og vikum mun koma mikið safn mynda og nýustu fréttir af því sem er að gerast í fjarskiptamálum hér á landi inn á þessa heimasíðu. Siggi Harðar.

Lesa alla fréttina
 
9.12.2007 18:35:00
Eldingar eyðileggja endurvarpa.

Haustið 2005 gengu miklar eldingar yfir suðurland. Þá skemdist mikið af fjarskiptabúnaði á fjöllum og sérstaklega á suðvesturhorninu. T.d. fóru útvarpssendar á Skálafelli ásamt Tetra sendi og fl. Á Þorbirni skemdist endurvarpi björgunarsveitanna og eitthvað af skipasendum. Á Eyjafjalla

Lesa alla fréttina
 
9.12.2007 17:52:00
VHF Endurvarpar á landinu fyrir björgunartsveitir

Á þessu ári og seint á síðasta hafa bæst við fjórir nýir endurvarpar fyrir björgunarsveitirnar og einn fyrir 4x4. Fyrir Reykjavíkursvæðið er nýr endurvarpi á Rás 11 staðsettur á DAS húsinu í Hafnafirði. Í sumar  var endurvarpi settur á Hlöðufell me

Lesa alla fréttina
 
7.12.2007 14:56:00
Heimasíða

  7 .desember 2007.   Í dag opnuðum við vefinn hjá okkur, en hann hefur verið í smíðum að undanförnu og er langt frá því að vera fullbúinn.   Við höfum opnað verslun að Dalvegi 16b í Kópavogi, þar sem við erum með fjölbreitt úr

Lesa alla fréttina